Skjótum rótum
Rótarskot er ný leið til þess að styrkja öflugt og mikilvægt sjálfboðastarf björgunarsveitanna. Hvert Rótarskot gefur af sér tré sem plantað er í nafni kaupandans, með stuðningi Skógræktarfélags Íslands.
Allur ágóðinn af sölu Rótarskotanna rennur til björgunarsveitanna.
Athugið þessi vara kemur án pappírs og því ekki hægt að sækja neina vöru til okkar en trjám verður engu að síður plantað í áramótaskóginn.
Tökum höndum saman og skjótum rótum.